ELTAK hefur í 25 ár sérhæft sig í sölu og þjónustu á rafeindavogum og öðrum búnaði til vigtunar, stýringar, skömmtunar, vörufrágangs og pökkunar.
Við bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum.
Það eru íslenskar vogir og tæki frá MAREL og mikið úrval af vogum frá:
A&D - AVERY BERKEL - SALTER - AVERY WEIGH-TRONIX
Frá SOCO-SYSTEM í Danmörku bjóðum við færibandakerfi sem setja má saman á ótal vegu ásamt ýmsum tækjum til vörufrágangs og pökkunar.
Bjóðum skynjunarbúnað frá LOMA í Englandi, sem er eitt virtasta fyrirtæki í heiminum í dag í hönnun og framleiðslu málmleitartækja og X-ray tækja fyrir matvæli.
Á þessari heimasíðu okkar geturðu litið á ýmsar aðrar vörur sem við erum umboðsaðilar fyrir á Íslandi s.s. EASIWEIGH skömmtunarbúnað, PATTYN pokavélar og pökkunartæki, TRANSLYFT með ýmiskonar lyftitæki, CPS pökkunarvélar o.fl.
Það nýjasta hjá okkur er SCALETRONIC rúmmáls skönnun, kerfi sem mælir sjálfvirkt rúmmál og þyngd pakka eða vörubretta ásamt flokkun.
Við þjónustum eigendur PÓLS voga og flokkara og tækja.
Nú eru yfir 800 fyrirtæki á Íslandi með um 7000 vogir og tæki sem við þjónustum.
Hikaðu ekki við að hafa samband við okkur til nánari upplýsinga