Tvær gerðir talningavoga eru í þessum flokk, þ.e. HC-A og HC-B og er helsti mismunur að B gerð er með aukaskjá fyrir vigtun og einingaþunga ásamt fullu rofaborði þar sem slá má inn einingaþunga við talningu.
Sameiginlegir eiginleikar HC voga eru:
- Mikil upplausn í talningu, 1/240000
- ACAI sjálfvirk leiðrétting á einingaþunga við talningu
- Markvigtun/talning upp að settu marki
- Gengur á rafmagni eða rafhlöðum
- RS-232 tengi fáanlegt til tölvuteningar
- Hleðslurafhlaða fáanleg.
Athugið að HC vogina má nota til beinnar vigtunar, en með því að setja grunnsetningar hennar fyrir vigtun, birtist vigtun (gr) á skjá þegar kveikt er á henni. Þar með er komin ódýr vog með þægilegum palli til vigtunar í þurru umhverfi.